Hverfisráð Miðborgar - 38. fundur

Hverfisráð Miðborgar

38. fundur 13. nóvember 2000

Ár 2000, mánudaginn 13. nóvember, var haldinn 38. fundur miðborgarstjórnar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 10.30. Viðstaddir voru auk borgarstjóra, Eva María Jónsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Bolli Kristinsson, Jóna Gróa Sigurðardóttir og Þorkell Sigurlaugsson. Jafnframt sátu fundinn: Einar Örn Stefánsson, Jóhannes Kjarval, Kristín Einarsdóttir, Anna Margrét Guðjónsdóttir, Edda Sverrisdóttir og Kristbjörg Stephensen sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Uppbyggingarhugmyndir í Kvos og á Hafnarsvæðinu. Á fundinn mætti Chris Wieszczycki. Töluverðar umræður urðu um þá möguleika sem eru á uppbyggingu í Kvosinni og á hafnarsvæðinu í tengslum við fyrirhugað tónlistar- og ráðstefnuhús og hótel í miðborginni.

- Kl. 11.45 vék Þorkell Sigurlaugsson af fundi.

- Kl. 11.50 vék Steinunn Valdís Óskarsdóttir af fundi.

2. Grófartorg Bolli Kristinsson kynnti hugmyndir sínar um skipulag Grófartorgs og jafnframt þá ágalla sem hann sæi á þeim hugmyndum, sem til vinnslu eru hjá Borgarskipulagi. Töluverðar umræður urðu um málið. Miðborgarstjórn leggur áherslu á að Borgarskipulag taki mið af þeim hugmyndum, sem kynntar voru á fundinum, við frekari vinnslu deiliskipulags að svæðinu.

3.Lagður fram bæklingur um miðborgina; "Blómstrandi miðborg".

3.Lagt fram ódagsett bréf Björns G. Björnssonar varðandi menningar- og listahús í Reykjavík.

Fundi slitið kl. 12.20.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Bolli Kristinsson
Jóna Gróa Sigurðardóttir
Eva María Jónsdót