English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Marion Poilvez, gjaldkeri í stjórn W.O.M.E.N.
Hún starfar sem hótelmóttökustjóri og er doktorsnemi við Háskóla Íslands. Hún situr einnig í stjórn IWW Ísland og styður og upplýsir starfsfólk af erlendum uppruna um réttindi þeirra á vinnumarkaði. Hún hefur brennandi áhuga á menntun og námi og árið 2022 bjó til verkefni Kvennaborðið sem er öruggt rými þar sem konur af erlendum uppruna geta sagt álit sitt á málefnum líðandi stundar og öðlast sjálfstraust í að tala íslensku.
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003.
Hlutverk Samtakanna er að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum kvenna sem sest hafa að á Íslandi rödd. Markmið Samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins. Á þessari heimasíðu eru upplýsingar um Samtökin, málefni og verkefni sem við störfum við. Einnig birtum við fréttir og tilkynningar um viðburði tengd innflytjenda-, kvenna- og fjölskyldumálum. Í forsvari fyrir Samtök kvenna af erlendum uppruna er stjórn sem kosin er árlega á fundi og situr eitt ár í senn. Samtökin eru opin öllum konum af erlendum uppruna sem búsettar eru á Íslandi.