Norðlingaskóli - Fagfólk í stoðþjónustu
Viltu starfa í öflugu stoðteymi þar sem fjölbreyttur hópur fagfólks vinnur þétt saman að velferð nemenda?
Norðlingaskóli leitar að metnaðarfullum þroskaþjálfa, atferlisþjálfa eða einstaklingi með aðra sambærilega uppeldismenntun til að ganga til liðs við kraftmikinn og skapandi starfsmannahóp.
Um er að ræða 50-100% tímabundið starf út skólaárið 2026-2027 með möguleika á ótímabundinni ráðningu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Í Norðlingaskóla leggjum við áherslu á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, skapandi smiðjuvinnu, gott samstarf við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á öflugri teymisvinnu starfsfólks.
Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur í 1.–10. bekk. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.
Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að skapa hverjum einstaklingi námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Helstu verkefni
- Skipulagning og framkvæmd sérhæfðrar þjálfunar nemenda í samstarfi við deildarstjóra stoðþjónustu, sérkennara, aðra kennara og foreldra.
- Fræðsla og ráðgjöf til samstarfsfólks og foreldra.
- Þátttaka í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
- Stuðningur við velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
- Menntun í þroskaþjálfafræði, atferlisþjálfun eða önnur sambærileg uppeldismenntun.
- Reynsla af og áhugi á starf með börnum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn ásamt ferilskrá og upplýsingum um nám og starfsreynslu rafrænt í gegnum ráðningarkerfi Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.
Frekari upplýsingar um skólann má finna á nordlingaskoli.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Anna Gunnarsdóttir, skólastjóri (gudrun.anna.gunnarsdottir@reykjavik.is).