Rimaskóli leitar að stærðfræðikennara frá lok febrúar 2027 og út skólaárið
Vegna fæðingarorlofs vantar okkur í Rimaskóla stærðfræðikennara ásamt umsjónarkennslu í 9.bekk. Um er að ræða stærðfræðikennslu í teymi hjá nemendum í 7. - 10.bekk, lífsleikni og umsjón hjá 9.bekk.
Stærðfræðin er kennd í teymi með öðrum kennurum og er stuðningur og áætlun til staðar.
Afleysing frá lok febrúar 2027 til skólaloka.
Verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara
- Menntun og hæfni til kennslu í stærðfræði
- Hæfni í teymiskennslu
- Þekking á upplýsingatækni
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í síma 411-7720 eða í netfanginu thoranna.rosa.olafsdottir@reykjavik.is.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.