Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi óskast íbúðakjarna í Grafarvogi

Óskað er eftir jákvæðum, ábyrgum og lausnamiðuðum stuðningsfulltrúa til starfa í íbúðakjarna í Grafarvogi. Um er að ræða 45% starf þar sem unnið er að mestu á dagvöktum, með möguleika á einstaka kvöld-, helgar- og næturvöktum.

Vegna sérstakra aðstæðna er eingöngu óskað eftir kvenkyns umsækjendum.

Hlutastarf Íbúðakjarni Starengi 118 112
Apply

Í íbúðakjarnanum Starengi 118 búa fimm frábærar konur, hver í sinni íbúð.

Hlutverk stuðningsfulltrúa er fjölbreytt og gefandi og felur í sér að veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs, efla sjálfstæði þeirra og þátttöku í samfélaginu ásamt því að mæta þörfum hvers og eins á einstaklingsmiðaðan hátt.

Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn þar sem áhersla er lögð á valdeflingu og rétt íbúa til að ráða sínu eigin lífi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarghildur Pálsdóttir í tölvupósti bjarghildur.palsdottir@reykjavik.is

Apply