Back to the jobs page

Hlutastarf í frístundaheimilinu Skýjaborgum

Stutt starfslýsing

Á Skýjaborgum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum lýkur. Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. 

Á Skýjaborgum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6 og 7 ára barna lýkur.

Hlutastarf Skýjaborgir, Vesturbæjarskóla 107
Apply

Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. Hæft og áhugasamt starfsfólk er lykillinn að því að veita börnunum og foreldrum sem sækja þjónustu til frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar fyrsta flokks þjónustu og gegna hæfir og áhugasamir frístundaleiðbeinendur/frístundaráðgjafar þar veigamiklu hlutverki.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.

Leiðbeina börnum í leik og starfi.

Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.

Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.

Hæfniskröfur

Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.

Áhugi á að vinna með börnum.

Frumkvæði og sjálfstæði.

Færni í samskiptum.

Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Í boði eru hlutastörf 20-50% eftir hádegi frá 1.des

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Sé óskað nánari upplýsinga um starfið má senda tölvupóst á laufey.hronn.jonsdottir@reykjavik.is

Ráðningarform - Timabundin ráðning til 10. júní 2027

Apply