Back to the jobs page

Vesturbæjarskóli - Stuðningsfulltrúi

Stuðningsfulltrúi aðstoðar börn sem þurfa sérstakan stuðning í námi, félagslegum samskiptum og athöfnum daglegs lífs. Hann vinnur í samstarfi við kennara og annað fagfólk að því að efla sjálfstæði, færni, þátttöku og vellíðan barna í skólastarfinu.

Hlutastarf Vesturbæjarskóli 101
Apply

Vesturbæjarskóli er grunnskóli fyrir börn í 1. - 7. bekk. Einkunnarorð skólans eru virðing, vellíðan og velgengni. Með það að leiðarljósi leggjum við áherslu á alúð, hlýju og farsæld barna og stuðlum þannig að jákvæðum skólabrag. Starfsfólk leggur sig fram við að skapa jákvætt og uppbyggjandi umhverfi þar sem öllum líður vel. Við erum Réttindaskóli Unicef þar sem markmið er að námsumhverfi sé lýðræðislegt, börn læri um mannréttindi og tileinki sér gagnkvæma virðingu.

Stuðningsfulltrúi aðstoðar börn sem þurfa sérstakan stuðning í námi, félagslegum samskiptum og athöfnum daglegs lífs. Hann vinnur í samstarfi við kennara og annað fagfólk að því að efla sjálfstæði, færni, þátttöku og vellíðan barna í skólastarfinu. Markmið er að tryggja börnum stuðning við hæfi svo þau geti tekið virkan þátt í skólastarfi, eflt sjálfstæði sitt, þroskað styrkleika sína og notið vellíðanar og velgengni í námi og félagslegu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • eru kennurum til aðstoðar við að sinna einu eða fleiri börnum sem þurfa sérstaka aðstoð
  • aðstoða börn eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs
  • auka færni og sjálfstæði barna félagslega, í námi og í athöfnum daglegs lífs
  • stuðla að velferð barna í samstarfi við kennara, foreldra og annað fagfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum æskileg.
  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði.
  • Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum. 

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Starfið er laust frá 1. janúar nk. eða eftir samkomulagi en um er að ræða tímabundið starf út skólaárið 2026-2027. Starfshlutfall er 60-75%. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis. Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Elísabet Finnsdóttir skólastjóri í síma 411-7150 eða á netfanginu gudlaug.elisabet.finnsdottir@reykjavik.is

Apply