Vesturbæjarskóli - Stuðningsfulltrúi
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur sem þurfa sérstakan stuðning í námi, félagslegum samskiptum og athöfnum daglegs lífs. Hann vinnur í samstarfi við kennara og annað fagfólk að því að efla sjálfstæði, færni, þátttöku og vellíðan nemenda í skólastarfinu.
Stuðningsfulltrúi aðstoðar nemendur sem þurfa sérstakan stuðning í námi, félagslegum samskiptum og athöfnum daglegs lífs. Hann vinnur í samstarfi við kennara og annað fagfólk að því að efla sjálfstæði, færni, þátttöku og vellíðan nemenda í skólastarfinu. Markmið er að tryggja nemendum stuðning við hæfi svo þeir geti tekið virkan þátt í skólastarfi, eflt sjálfstæði sitt, þroskað styrkleika sína og notið vellíðanar og velgengni í námi og félagslegu umhverfi.
Stuðningsfulltrúar:
- eru kennurum til aðstoðar við að sinna einu eða fleiri börnum sem þurfa sérstaka aðstoð
- aðstoða börn eftir þörfum hvers og eins við athafnir daglegs lífs
- aðstoða börn við að auka færni og sjálfstæði félagslega, í námi og í athöfnum daglegs lífs
- stuðla að velferð barna í samstarfi við kennara, foreldra og annað fagfólk.