Back to the jobs page

Leikskólakennari - Leikskólaliði

Leikskólinn Árborg auglýsir eftir leikskólakennara, leiðbeinanda eða starfsmanni með sambærilega menntun til starfa.

Árborg er 3ja deilda leikskóli, staðsettur í Selásskóla í Árbænum. 

Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu. 

Leiðarljós okkar er traust, samvinna, lífsgleði og nám.

Fullt starf Leikskólinn Árborg 110
Apply

Við leggjum áherslu á að gleði sé ríkjandi í öllu starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir hverjum einstaklingi.

Framundan eru spennandi tímar bæði með endurskipulagning á starfinu en við erum að vinna í innleiðingu á að starfa í anda Reggio Emilia skal vera í hávegum haft með Aðalnámskrá leikskóla, Menntastefnu Reykjavíkurborgar og lög um leikskóla að leiðarljósi. Þá verður áhersla jafnframt á læsi og að efla íslenskan orðaforða. 

Að vinna að menntun og uppeldi leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þar með talið að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara, og eða önnur uppeldismenntun æskileg.
  • Góð íslenskukunnátta algjört skilyrði. Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

  • Frítt í sundlaugar borgarinnar.
  • Frítt fæði á matartímum leikskólans
  • Menningarkort þar sem innifalið í kortinu eru 14 söfn, fjöldi sýninga og viðburða, bókasafnsskírteini auk fjölda tilboða.
  • Heilsuræktarstyrkur eftir 6 mánuði í starfi sem er nú komin í 28.000kr. árlega.
  • Samgöngustyrkur með greiðslu mánaðarlega þar sem fólk er hvatt til að notast við umhverfisvænar ferðir til og frá vinnu.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Upplýsingar um starfið gefur Elín Björk Einarsdóttir, leikskólastjóri í síma 411 3370, 695 4230 eða í tölvupósti arborg@reykjavik.is

Apply