Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur í frístundaheimilinum Vogasel og Álftabæ
Frístundaheimilin Álftabær og Vogasel óska eftir starfsfólki fyrir veturinn 2026 - 2027
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið uppá fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Í boði eru tímabundin hlutastörf 30-50% eftir hádegi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Svanhvít Valtýsdóttir, forstöðukona í Vogaseli
Tölvupóstur svanhvit.valtysdottir@reykjavik.is
Alda Mjöll Sveinsdóttir, forstöðukona í Álftabæ
Tölvupóstur alda.mjoll.sveinsdottir@reykjavik.is