Snemmtæk íhlutun - Holt
Leikskólinn Holt auglýsir eftir leikskólasérkennara, þroskaþjálfa eða starfsmanni með sambærilega menntun og/eða reynslu til starfa.
Holt er fimm deilda leikskóli, staðsettur í tveimur húsum í Völvufelli 7-9 í Breiðholti. Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu.
Komdu að leika með okkur í Holti :)
Holt er fimm deilda leikskóli, staðsettur í tveimur húsum (Stóra-Holt og Litla-Holt) í Völvufelli 7-9 í Breiðholti. Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu. Við erum samstarfsaðilar í þróunarverkefninu „Markviss málörvun í Fellahverfi". Við erum í miklu samstarfi í hverfinu um menningu, mál og læsi í Fellahverfi. Í tengslum við bæði þessi verkefni erum í samvinnu með talmeinafræðingum um málörvun barna og fræðslu fyrir starfsfólk og foreldra. Einnig erum við að vinna með tannvernd, að efla félagsfærni barna og Vináttuverkefnið um Blæ bangsa.
Verkefni og ábyrgð
- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum
Hæfniskröfur
- Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Lipurð í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Stundvísi
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttafélags
Starfið er laust og starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra B. Gunnlaugsdóttir, leikskólastjóri
Halldora.Bjorg.Gunnlaugsdottir@reykjavik.is / 693-9882
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.