Back to the jobs page

Norðlingaskóli - Þroskaþjálfi

Viltu starfa í öflugu stoðteymi þar sem fjölbreyttur hópur fagfólks vinnur þétt saman að velferð nemenda? Norðlingaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan þroskaþjálfa í 50-100% tímabundið starf út skólaárið 2026-2027. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. 

Fullt starf Norðlingaskóli 110
Apply

Í Norðlingaskóla leggjum við áherslu á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, skapandi smiðjuvinnu, gott samstarf við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á öflugri teymisvinnu starfsfólks.

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur í 1.–10. bekk. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.

Stefna og starf skólans grundvallast á því lífsviðhorfi að skapa hverjum einstaklingi námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Helstu verkefni

  • Umsjón með skipulagningu og framkvæmd sérhæfðrar þjálfunar nemenda ásamt fræðslu og ráðgjöf til samstarfsfólks og foreldra.
  • Þjálfun nemenda í samráði við deildarstjóra stoðþjónustu, sérkennara, aðra kennara og foreldra.
  • Þátttaka í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
  • Stuðningur við velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Þroskaþjálfamenntun og leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi eða sambærileg menntun.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Áhugi og vilji til að starfa í teymisvinnu.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn ásamt ferilskrá og upplýsingum um nám og starfsreynslu rafrænt í gegnum ráðningarkerfi Reykjavíkurborgar þar sem starfið er auglýst.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á nordlingaskoli.is.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Anna Gunnarsdóttir, skólastjóri (gudrun.anna.gunnarsdottir@reykjavik.is).

Apply