Leikskólastjóri - Engjaborg
Staða leikskólastjóra í leikskólanum Engjaborg er laus til umsóknar. Leitað er að leikskólakennara með farsæla stjórnunarreynslu og leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að leiða metnaðarfullt starf í leikskólanum.
Starf leikskólans Engjaborgar byggir á gildunum vellíðan, virðing og sköpun og einkennist af þeirri trú að öll börn séu hæf, forvitin og virk í eigin námi. Námið fer fram í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á þátttöku barna, lýðræðislega starfshætti, sköpun, rannsóknir og samvinnu. Uppeldisstarfið byggir á félagslegri hugsmíðahyggju og sækir jafnframt innblástur til hugmyndafræði Reggio Emilia, þar sem umhverfið, samskipti og hugmyndir barna gegna lykilhlutverki í námi og þroska. Markmið Engjaborgar er að skapa hlýlegt, öruggt og hvetjandi lærdómssamfélag þar sem börn, fjölskyldur og starfsfólk læra og vaxa saman.
Starfið byggir á Menntastefnu Reykjavíkurborgar og þeirri sýn að börn öðlist menntun og reynslu sem gerir þeim kleift að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt og samfélag.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar.
- Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
- Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn.
- Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum.
- Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
- Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar, sýnir ábyrgð, ráðdeild og framsýni í nýtingu fjármuna.
- Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
- Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi.
- Reynsla af stjórnun.
- Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
- Þekking og reynsla á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
- Hæfni til að byggja upp jákvæða og faglega starfsmenningu.
- Lipurð og hæfni í samskiptum.
- Sjálfstæði og frumkvæði.
- Áhugi og reynsla af að leiða þróunarstarf.
- Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda í leikskólum.
Um er að ræða fullt starf og verður ráðið ótímabundið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Lilja Jónsdóttir, deildarstjóri á leikskólaskrifstofu skóla- og frístundasviðs, í tölvupósti Hildur.Lilja.Jonsdottir@reykjavik.is eða í síma 863-2871.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.