Back to the jobs page

Deildarstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum

Dropaugarstaðir hjúkrunarheimili óska eftir öflugum hjúkrunarfræðing í starf deildarstjóra hjúkrunar.

Fullt starf Droplaugarstaðir 105
Apply

Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.

Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.

Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.

Íbúar eru 87 á fjórum deildum. Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Við bjóðum upp á

  • Gæðavottað starfsumhverfi
  • Krefjandi og spennandi verkefni
  • Skemmtilegan og faglegan starfsmannahóp
  • Heimilislegt vinnuumhverfi
  • Starfshlutfall og fyrirkomulag samkomulagsatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulag, stjórnun og umsjón með daglegri starfsemi deildarinnar.
  • Ábyrgð á mönnun, vaktaskipulagi og verkefnadreifingu.
  • Fagleg forysta og ábyrgð á gæðum hjúkrunar, hjúkrunaráætlunum og skráningu.
  • Umsjón með mati á hjúkrunarþörfum íbúa, þar á meðal RAI-mati.
  • Ábyrgð á samskiptum og samstarfi við íbúa, aðstandendur og starfsfólk.
  • Leiðsögn, fræðsla og þjálfun starfsfólks og nema.
  • Þátttaka í almennri og sérhæfðri hjúkrun íbúa eftir þörfum.
  • Eftirlit með öryggismálum, atvikaskráningu og eftirfylgni.
  • Stuðla að faglegri þróun, góðri liðsheild og stöðugum umbótum í hjúkrunarþjónustu.

Hæfniskröfur

  • Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Íslenskukunnátta á stig C1 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
  • Sérnám í stjórnun og /eða öldrunarhjúkrun æskileg
  • Reynsla af hjúkrun aldraðra æskileg
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Reynsla af teymisvinnu og útdeildingu verkefna æskileg
  • Frumkvæði, sjálfstæði vinnubrögð, hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, heiðarleiki og jákvæðni.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Ösp Sumarliðadóttir hjúkrunarstjóri í netfanginu sigridur.osp.sumarlidadottir@reykjavik.is

Apply