Íþróttakennari
Íþróttakennari óskast til starfa í Háteigsskóla.
Háteigsskóli óskar eftir að ráða íþróttakennara í afleysingar.
Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Skólastarfið byggir á menntastefnu Reyjavíkurborgar, leiðsagnarnámi og teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi.
Háteigsskóli leggur ennfremur áherslu á góðan starfsanda og hefur skólinn hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarstofnun síðastliðin þrjú ár í röð í vali á stofnun ársins. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs.
Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
- Kennaramenntun áskilin.
- Hæfnipróf vegna sundkennslu áskilið.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði.
- Góð íslenskukunnátta.
- Teymishugsun.
- Hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Norberg Sigfúsdóttir í síma 411 6870 eða í tölvupósti gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is