Back to the jobs page

Deildarstjóri á elstu deild í Rauðaborg

Deildarstjóri óskast á elstu deild í leikskólanum Rauðaborg frá 1. janúar 2027 eða fyrr. Óskað er eftir leikskólakennara eða einstaklingi með sambærilegt nám til að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.

Fullt starf Leikskólinn Rauðaborg 110
Apply

Í Rauðaborg dvelja 58 börn ásamt tæplega 20 starfsmönnum alla daga. Leikskólinn er staðsettur í efri byggðum Reykjavíkur, í nálægð við Elliðarárdal og Rauðavatn. Í Rauðaborg er lögð áhersla á samvinnu, sjálfstæði og vináttu og einkunnarorð leikskólans eru Gleði, virðing, sjálfsefling. Við vinnum m.a. með Lubba sem finnur málbein og Blæ sem er vináttuverkefni Barnaheilla. Einnig er gott og rótgtróið samstarf við Selásskóla. Elstu börnin í Rauðaborg fara mikið í vettvangsferðir og hafa tekið þátt í Barnmenningarhátíð á hverju vori í mörg ár. Í Rauðaborg leggjum við áherslu á að öllum líði vel alla daga í leik og starfi, læri góð samskipti og virðingu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:

  • Að bera ábyrgð á uppeldis - og menntunarstarfinu sem fer fram á deildinni
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá leikskólans
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamstarfi
  • Að vera hluti af stjórnendateymi leikskólans

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara nauðsynlegt
  • Reynsla af starfi í leikskóla æskileg
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og áhugi
  • Stundvísi, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Góð íslenskukunnátta - B2 tungumálastaðall

Fríðindi í starfi:

  • 36-38 stunda vinnuvika
  • Frítt fæði á vinnutíma
  • Samgöngustyrkur
  • Aðgangskort í sundlaugar Reykjavíkur og á bókasöfn og listasöfn
  • Heilsuræktarstyrkur

Frekari upplýsingar um starfið:

Upplýsingar um starfið veitir Unnur Hermannsdóttir, leikskólastjóri í síma 411 3380 eða á netfangið

raudaborg@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags. 

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum.

Staðan er laus frá 1. janúar 2027 eða fyrr.

Apply