Back to the jobs page

Deildarstjóri

Við erum að leita að áhugasömum deildarstjóra á leikskóladeild Ártúnsskóla! 

Ártúnsskóli er samrekinn leikskóli, grunnskóli, og frístundaheimili þar sem áhersla er lögð á að allir fái að njóta sín í leik og starfi. 

Fullt starf Ártúnsskóli leikskóladeild 110
Apply

Deildarstjóri óskast til starfa í Leikskóladeild Ártúnsskóla

Ártúnsskóli leitar eftir að ráða deildarstjóra í 80 - 100% starf í leikskóladeild Ártúnsskóla. Leikskóladeildin er þriggja deilda leikskóli í Ártúnsholti og eru þar 61 barn við leik og störf.

Ártúnsskóli er samrekinn leikskóli, grunnskóli, og frístundaheimili þar sem áhersla er lögð á að allir fái að njóta sín í leik og starfi. Hlutverk Ártúnsskóla, í samvinnu við heimilin, er að stuðla að alhliða þroska nemenda og leggja grunn að virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi.

Einkunnarorð skólans eru Árangur-Virðing-Vellíðan.

Vinnuvikan er 36 klst í leikskóladeildinni.

Starfið er laust frá 1. janúar 2026. 

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni.
  • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar.
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika
  • Heilsuræktarsstyrkur
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur
  • Menningarkort 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veita Hanna Sóley Helgadóttir, aðstoðarskólastjóri leikskóladeildar, hanna.soley.helgadottir@reykjavik.is 411-7691 og Ellen Gísladóttir skólastjóri, ellen.gisladottir@reykjavik.is

Apply