Back to the jobs page

Starfsmaður í stuðning - Laugarseli

Frístundaheimilið Laugarsel við Laugarnesskóla óskar eftir stuðningsfulltrúa í 50% starfhlutfall eftir hádegi. Skemmtilegt og lifandi starf með börnum í 1. - 2. bekk.

Hlutastarf Frístundaheimilið Laugarsel, Laugarnessk 108
Apply

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið uppá fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir börn í 1. - 2. bekk.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.

Hæfniskröfur

 

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Jón Steinar Ágústsson, Forstöðumaður

Tölvupóstur Jon.Steinar.Agustsson@reykjavik.is

Í boði eru tímabundið hlutastarf 50% eftir hádegi. 

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Apply