Ræsting Droplaugarstaðir
Droplaugarstaðir Hjúkrunarheimili óska eftir öflugum starfskrafti í afleysingar í ræstingu heimilisins.
Um hlutastarf er að ræða og unnið er aðra hvora helgi.
Droplaugarstaðir:
Droplaugarstaðir er hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Droplaugarstaðir er með virkt gæðakerfi og fékk ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.
Unnið er eftir Eden alternative stefnunni.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.
Íbúar eru 87 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi.
Við erum staðsett við Snorrabraut, í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.
- Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Tímabundin ráðning til 6 mánaða.
- Reynsla af ræstingum æskileg.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð æskileg.
- Hreint sakavottorð skv. reglum Reykjavíkurborgar.