Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi í Engjaskóla

Engjaskóli óskar eftir metnaðarfullum stuðningsfulltrúa í 75% starf frá og með 1. janúar 2027.

Engjaskóli er grunnskóli í norðanverðum Grafarvogi og er fyrir nemendur í 1. -7. bekk. 

Hlutastarf Engjaskóli - Sérkennsla stuðf. 112
Apply

Hlutverk Engjaskóla er að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi nám, stuðla að alhliða þroska allra nemenda, að mennta ábyrga og hæfa þjóðfélagsþegna með það að markmiði að þeir verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar sem geta tekið virkan þátt í þróun samfélagsins og stundað frekara nám.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Vinnur eftir áætlun sem bekkjarkennari hefur útbúið í samráði við deildarstjóra sérkennslu.

· Auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum.

· Aðstoðar þá við að ná settum markmiðum samkvæmt aðal - og/eða einstaklingsnámskrá og aðlagar verkefni að getu nemenda undir leiðsögn kennara.

· Aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð. Vinnur gegn neikvæðri hegðun t.d. með jákvæðri atferlismótun og með því að fylgja nemanda tímabundið afsíðis.

· Fylgir nemendum á ferðum um skólann, í sund, í frímínútur og vettvangsferðir og aðstoðar eftir þörfum.

· Situr fag - og foreldrafundi eftir því sem við á.

· Getur eftir aðstæðum einnig sinnt öðrum nemendum í bekknum meðal annars til að kennari geti aðstoðað nemanda sem þarf séraðstoð og til að draga úr sérstöðu nemanda með sérþarfir.

· Önnur störf sem stjórnendur og deildarstjóri sérkennslu felur.

Hæfinskröfur

· Metnaður og áhugi á að starfa með börnum

· Lipurð og færni í mannlegum samskiptum

· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

· Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi

· Stundvísi og samviskusemi

· Líkamlega burði til að geta fylgt eftir heilsustefnu skólans

· Reynsla í starfi með börnum æskileg

· Getur talað og ritað góða íslensku. Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

· Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameyki

Nánari upplýsingar um starfið veitir Álfheiður Einarsdóttir skólastjóri í síma 411 7750 eða með því að senda fyrirspurn á alfheidur.einarsdottir@reykjavik.is

Apply