Back to the jobs page

Starfsmaður í þjónustukjarna við Sléttuveg

Ertu að leita að fjölbreyttu og þýðingarmiklu starfi?

Þjónustukjarni við Sléttuveg 3,7,9 óskar eftir öflugum og jákvæðum starfskrafti. Vinnustaðuinn einkennist af hlýju og fagmennsku- og við tökum vel á móti nýju fólki ! 

Fullt starf Heimaþjónusta Sléttuvegi 103
Apply

Þjónustukjarni við Sléttuveg leitar að ábyrgum og hlýjum einstaklingi sem er tilbúinn til þess að takast á við fjölbreyttar áskoranir. Þú munt hafa bein áhrif á lífsgæði, styðja þjónustuþega til aukins sjálfstæðis og samfélagsþátttöku.

Á Sléttuvegi starfar teymi starfsfólks sem sinnir stuðnings- og stoðþjónustu. Lögð er áhersla á þverfaglegt starf í nánu samstarfi við þjónustuþega og sinnir starfsstöðin fjölbreyttri þjónustu við einstaklinga sem, vegna sjúkdóma og/eða fötlun, þurfa aðstoð inn á eigið heimili.

Hér starfar þéttur og samheldinn hópur starfsfólks. Jákvæðni og liðsheild einkennir vinnustaðinn og þar ríkir virðing og samvinna í öllu sem við gerum.

Um er að ræða vaktavinnu á sólarhringsstað.

Starfshlutfall getur verið 80-100%.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Unnið er eftir Velferðarstefnu Reykjavíkurborgar
  • Sinna stuðnings- og stoðþjónustu til einstaklinga í sjálfstæðri búsetu
  • Taka þátt í teymisvinnu
  • Hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
  • Styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald vinnu og samfélagsþátttöku
  • Sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki eða heimaþjónustu.
  • Starfsmaður þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Almenn góð tölvukunnátta
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta (B1 skv. evrópska tungumálarammanum)
  • Frumkvæði, yfirvegun, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Nánari upplýsingar:

veitir Hildur Dröfn Þórðardóttir forstöðumaður, hildur.drofn.thordardottir@reykjavik.is eða síma 664-7864

Apply