Sjúkraliði í Esjutún - dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun
Sérhæfð dagþjálfun Esjutún fyrir fólk með heilabilun auglýsir eftir drífandi og ábyrgum sjúkraliða .
Starfshlutfall er 100% eða eftir nánara samkomulagi.
Dagþjálfun á Esjutúni er fyrir fólk sem greinst hefur með heilabilunarsjúkdóma. Þar er boðið uppá virkni og endurhæfingu í samráði við fagaðila. Boðið er uppá fjölbreyttar samverustundir, útiveru, vinnustofu og létta leikfimi og ýmislegt fleira til að viðhalda athöfnum daglegs lífs Áhersla er lögð á einstaklingshæfða nálgun og samvinnu við aðstandendur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðningur við skjólstæðinga í athöfnum daglegs lífs í samstarfi við annað starfsfólk.
- Fagleg ábyrgð í starfi.
- Vinna samkvæmt gæðastefnu velferðarsviðs og persónumiðaðri nálgun.
- Starfa í samræmi við gildi Esjutúns: virðingu, virkni og vellíðan.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að starfa sem sjúkraliði.
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.
- Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum.
- Góð samskipta- og skipulagshæfni.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Drifkraftur og hæfni til að stuðla að góðum starfsanda.
- Jákvæðni og gott viðmót.
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur.
- Heilsustyrkur.
- Menningarkort.
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar.
- 36 stunda vinnuvika.
Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélags Íslands.
Frekari upplýsingar veitir Guðný Valgeirsdóttir, forstöðumaður, gudny.valgeirsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-9466