Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Ertu faglega sterkur einstaklingur sem hefur brennandi áhuga á að leiða öflugt teymi í dagvinnu þar sem lögð er áhersla á sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu íbúa?
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir metnaðarfullum og færum deildastjóra í 100% starf í dagvinnu (með betri vinnutíma) í íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í Grafarholti. Markmið þjónustunnar er að veita íbúum aðstoð til sjálfstæðs og innihaldsríks lífs, innan sem utan heimilis, í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón, eftirlit og fagleg ábyrgð á daglegri þjónustu og þjónustuþörfum íbúa í sínu teymi.
- Stýrir daglegum störfum annarra starfsmanna í samráði við forstöðumann.
- Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar, sjálfræðis og félagslegrar virkni.
- Skipuleggur og ber ábyrgð á framkvæmd einstaklingsáætlana í samráði við íbúa, starfsmenn og forstöðumann.
- Veitir starfsmönnum leiðsögn og tilsögn um framkvæmd þjónustu og tekur virkan þátt í teymisvinnu og þróunar- og uppbyggingarvinnu varðandi faglegt starf.
- Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
- Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
- Reynsla af störfum á geðsviði eða í búsetuþjónustu er skilyrði. Reynsla af stjórnun og teymisvinnu er æskileg.
- Reynsla og þekking á vinnu með íbúum út frá hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og valdeflingu er mikill kostur.
- Afburðahæfni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, jákvæðni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Kunnátta á tímaskráningarkerfinu Vinnu og Vinnustund er kostur.
- Góð íslenskukunnátta – C1 eða C2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
- Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi hjá Reykjavíkurborg
- Sund- og menningarkort Reykjavíkurborgar
- Heilsu- og samgöngustyrkur
- 36 stunda vinnuvika (betri vinnutími í dagvinnu)
- Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Reykjavíkurborg leitast við að laða að fjölbreyttan hópi fólks og hvetur öll áhugasöm, án kynbundinna takmarkana, til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður: Aðalheiður Kristín Jónsdóttir í tölvupósti Adalheidur.Kristin.Jonsdottir@reykjavik.is