Back to the jobs page

Starfsmaður á bókasafni

Starfsmaður á bókasafni

Fullt starf Háteigsskóli 105
Apply

Háteigsskóli óskar eftir að ráða starfsmann á bókasafn skólans í 50% starf út skólaárið. 

Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Skólastarfið byggir á menntastefnu Reyjavíkurborgar, leiðsagnarnámi og teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi.

Háteigsskóli leggur ennfremur áherslu á góðan starfsanda og hefur skólinn hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarstofnun síðastliðin þrjú ár í röð í vali á stofnun ársins. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs.

Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast safnkost skólasafnsins.
  • Yfirumsjón með daglegri starfsemi skólasafnsins.
  • Vera nemendum og kennurum innan handar við upplýsingaöflun.
  • Vera í samstarfi við starfsfólk skólans um að efla læsi.

Hæfniskröfur

  • Menntun í bókasafnsfræði/upplýsingafræði og/eða reynsla af bókasafnsstörfum æskileg.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Teymishugsun

Frekari upplýsingar um starfið. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Sigfúsdóttir skólastjóri á netfanginu gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is

Apply