Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi

Stuðningsfulltrúi óskast til starfa í Breiðholtsskóla.

Breiðholtsskóli er heildstæður grunnskóli með um 360 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, traust og tillitssemi og kjörorðin -árangur fyrir alla.

Fullt starf Breiðholtsskóli - Sérkennsla stuðf. 109
Apply

Stuðningsfulltrúi óskast til starfa í Breiðholtsskóla í 70-100% starf.

Starfsfólk vinnur saman í teymum, tekur virkan þátt í þróun skólastarfsins og starfsandi er góður. Mikil áhersla er lögð á læsi í víðum skilningi, félagsfærni og sjálfseflingu nemenda. Breiðholtsskóli státar af fjölmenningarlegu samfélagi bæði nemenda og starfsmanna en rúmlega 60% nemenda hafa annað móðurmál en íslensku. 

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, er sjálfstæður í vinnubrögðum og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi, frímínútum og vettvangsferðum.
  • Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra stoðþjónustu.
  • Að auka færni og sjálfstæði nemenda félagslega, í námi og í athöfnum daglegs lífs.
  • Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði.
  • Nákvæmni og fagmennska í vinnubrögðum.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi:

  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Heilsuræktarstyrkur

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Bjarney Elíasdóttir, skólastjóri Breiðholtsskóla. Sími 4117450, netfang asta.bjarney.eliasdottir@reykjavik.is.

Apply