Back to the jobs page

Skemmtileg störf á frístundaheimili í Breiðholti

Starfsfólk óskast í hlutastörf á frístundaheimilin Álfheima, Vinaheima og Vinasel

Hlutastarf Frístundamiðstöðin Miðberg 111
Apply

Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.

Frístundaheimilin Álfheimar, Vinaheimar og Vinasel leita að starfsfólki í hlutastörf til að sinna stuðningi við börn sem þarfnast aukins stuðnings á frístundaheimilum.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um hlutastörf er að ræða og tímabundna ráðningu til 9.júní 2027 með möguleika áframhaldandi ráðningu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

* Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.

* Stuðningur við börn í leik og starfi.

* Unnið eftir einstaklingsáætlunum barna. Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.

* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.

Hæfniskröfur:

* Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.

* Áhugi á að vinna með börnum.

* Frumkvæði og sjálfstæði.

* Færni í samskiptum.

* Góð íslenskukunnátta. (B1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum)

Í boði eru hlutastörf, 20%-50%, eftir hádegi virka daga. 

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Nánari upplýsingar um starfið gefur:

Kristrún Lilja Daðadóttir

kristrun.lilja.dadadottir@reykjavik.is 

Apply