Starfsmaður heimastuðnings
Heimastuðningur Suðaustur leitar eftir duglegum og samviskusömum aðila til þess að sinna heimilisþrifum í Reykjavík.
Heimastuðningur Suðaustur óskar eftir að ráða til sín starfsfólk í fjölbreytt og spennandi starf í Reykjavík. Stuðningurinn felur meðal annars í sér samveru við notendur og stuðning við ýmis verkefni og heimilishald. Um er að ræða framtíðarstarf í fullu starfi, þar sem unnið er á dagvinnutíma.
Heimastuðningur veitir aðstoð eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, ásamt aðstoð við almenn heimilisstörf.
Hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framfylgir stuðningsáætlun í samráði við ábyrgðaraðila
- Styður notendur við að viðhalda færni sinni.
- Þátttaka í teymisvinnu sem tengist starfinu
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni
- Er vakandi yfir félagslegri, andlegri og líkamlegri líðan notanda og upplýsir yfirmenn um breytingar á líðan.
Hæfnisskilyrði
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
- Bílpróf
- Íslensku kunnátta A1- B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Reynsla af heimaþjónustu eða sambærilegum störfum æskileg.
- Kunnátta og þekking í almennum heimilisþrifum, kunna skil á efnum og áhöldum notuðum til starfsins er æskilegt.
Fríðindi:
- Menningar- og sundkort hjá Reykjavíkurborg
- Samgöngustyrkur
- Heilsuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvika
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Dís Einarsdóttir, teymisstjóri í heimaþjónustu eva.dis.einarsdottir@reykjavik.is eða í síma 411-2805.