Sérkennslustjóri
Sérkennslustjóri
Laus er til umsóknar staða sérkennslustjóra í leikskólanum Seljaborg.
Starfið er tímabundið í eitt ár en með möguleika á áframhaldandi starfi. Seljaborg er nú þriggja deilda leikskóli og þar dvelja 48 börn. Fyrirhugað er að opna nýja deild í viðbyggingu sem nú er í undirbúningi. Gert er ráð fyrir að 18 börn verði á nýju deildinni og að leikskólinn verði þá fjögurra deilda með alls 66 börn.
Leikskólinn er staðsettur við Tungusel í Seljahverfi. Í nágrenninu er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni.
Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni framundan í Seljaborg.
Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir góður starfsandi.
Í leikskólanum er lögð áhersla á stuðning við jákvæða hegðun, sterka félagsfærni og að efla mál og læsi.
Óskað er eftir aðila sem er tilbúinn til að taka þátt og þróa starfið og vera um leið hluti af heildarsýn skólans og því faglega starfi sem þar fer fram. Framundan eru spennandi tímar þar sem meðal annars á að rýna í námskrá leikskólans, leikrými barnanna, námsgögn og efnivið og margt fleira í leikskólastarfinu.
Helstu verkefni:
Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra.
Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga og aðalnámskrá leikskóla.
Faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum og veitir ráðgjöf til annarra starfsmanna. Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem þess þurfa.
Veita foreldrum/forráðamönnum barna, stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
Vera faglegur tengiliður við aðila utan leikskólans sem tengjast sérkennslu.
Þátttaka í stefnumörkun skólans ásamt stjórnunarteymi og öðru samstarfi.
Menntunar og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun eða þroskaþjálfa menntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta.
Reynsla af sérkennslu æskileg.
Fríðindi í starfi:
Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu 36-38 stunda vinnuvika.
Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/félags leikskólakennara.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Dóra Hlíðdal Magnúsdóttir leikskólastjóri, inga.dora.hliddal.magnusdottir@reykjavik.is