Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi á íbúðakjarna í Laugardalnum

Skemmtilegt starf á íbúðakjarna fyrir fatlaða í Laugardalnum!

Fullt starf Íbúðakjarni Austurbrún 6a 104
Apply

Okkur vantar viðbót í frábæran starfsmannahóp á íbúðakjarna í Laugardal. 

Í Austurbrún 6a búa sex frábærir einstaklingar sem reiða sig á drífandi, jákvætt og skemmtilegt starfsfólk til að fá sem mest út úr lífinu.

Íbúar Austurbrúnar eru með fjölbreyttar þjónustuþarfir og þurfa mismikinn stuðning við allar athafnir daglegs lífs. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og fer fram í íbúðum íbúa.

Markmið þjónustunnar er að efla sjálfstæði, vellíðan og þátttöku hvers og eins út frá eigin forsendum.

Um er að ræða 80% starf í vaktavinnu dag-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir, bæði á virkum dögum og um helgar. 

Vegna sérstakra aðstæðna eru kvenkyns umsækjendur sérstaklega hvattir til að sækja um

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Oddrún Ólafsdóttir í tölvupósti oddrun.olafsdottir01@reykjavik.is

Apply