Back to the jobs page

Teymisstjóri óskast í skaðaminnkandi búsetuúrræði fyrir konur

Öflugur teymisstjóri óskast í skaðaminnkandi búsetuúrræði fyrir konur. 

Fullt starf Íbúðakjarni Hringbraut 121 105
Apply

Teymisstjóri sinnir umsjón með framkvæmd og skipulagi á þjónustu við íbúa, ásamt daglegum störfum og forgangsröðun verkefna starfsmanna, í samstarfi við forstöðumann.

Vinnur náið með íbúum og öðru starfsfólki.

Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs í 100% starfshlutfalli og er vinnufyrirkomulag áætlað í dagvinnu, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í nóvember. Önnur tilfallandi verkefni utan dagvinnutíma eru útfærð eftir samkomulagi.

Markmið með þjónustu heimilisins er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt. Íbúum er veitt ráðgjöf og sértækur stuðningur í búsetunni. Þjónustan er veitt með það að markmiði að efla vald íbúa yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd, sjálfstraust, sjálfsvirðingu, félagslega stöðu, og lífsgæði. Þjónustan tekur mið af skaðaminnkandi nálgun, þjónandi leiðsögn og batahugmyndafræði. Mikilvægt er að starfsmaður treysti sér í að sinna verkefnum við krefjandi aðstæður.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir einstaklinga í teyminu og ber ábyrgð á að starfsemin mæti þjónustuþörfum einstaklinga.
  • Hvetur og styður einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald, vinnu og samfélagsþátttöku.
  • Stýrir samstarfi við fagaðila, aðra starfsmenn, einstaklinga og aðstandendur.
  • Stýrir fundum og teymisvinnu sem tengjast íbúum.
  • Leysir af forstöðumann og er hluti af stjórnunarteymi starfsstaðar.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af sambærilegum störfum.
  • Reynsla af vinnu með fólki í vímuefnavanda.
  • Þekking og áhugi á skaðaminnkandi nálgun.
  • Umburðalyndi og virðing fyrir fólki með flóknar og miklar þjónustuþarfir.
  • Jákvæðni, frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi

  • Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
  • Sund- og menningarkort

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Edda Kristjánsdóttir forstöðukona í tölvupósti Edda.Kristjansdottir@reykjavik.is.

Apply