Sérkennslan leikskólinn Stakkaborg
Leikskólakennari með sérkennslu óskast til starfa í leikskólanum Stakkaborg. Starfið felur í sér að vinna í sérkennsluteymi leikskólans sem sinnir börnum með sérþarfir. Starfið felst í þjálfun og stuðningi við börn.
Leikskólinn Stakkaborg er staðsettur í Bólstaðahlíð, í fallegu umhverfi og nú nýlega var verið að stækka skólann í fimm deilda. Í daglegu starfi er lögð er áhersla á flæði og frjálsan leik. Starfið er laust nú þegar. Starfið felur í sér að vinna í stuðningsteymi leikskólans undir handleiðslu sérkennslustjóra. Í starfinu felst að fylgja eftir börnum sem þarfnast stuðnings, aðstoða þau í daglegum athöfnum, veita þjálfun og sinna inni á deildum. Þekking á Pecs er mikill kostur. Starfið er fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi, þar sem enginn dagur er eins og við sköpum ný ævintýri á hverjum degi. Stakkaborg er rótgróinn leikskóli miðsvæðis í Reykjavík. Við erum með flottan starfsmannahóp sem vinnur saman með virðingu, jákvæðni og samvinnu að leiðarljósi. Hér er gott að starfa og viljum við að starfsmenn séu virkir þátttakendur í starfi og stefnu leikskólans.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Hæfniskröfur
- Atferlisfræðingur, Þroskaþjálfamenntun eða menntun í sálfræði er kostur.
- Reynsla af sérkennslu æskileg.
- Þekking á Pecs og Tákn með tali æskileg.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
- Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði.
Starfið er laust eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Inga Mogensen í síma 411-3152 eða á netfanginu stakkaborg@reykjavik.is