Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Gullborg auglýsir eftir leikskólakennara eða leiðbeinanda.
Leikskólinn Gullborg auglýsir eftir leikskólakennara eða leiðbeinenda. Skólinn er fimm deilda og er í góðu samstarfi við tvo aðra leikskóla í Vesturbænum. Við leggjum sérstaka áherslu á félagsfærni og sjálfseflingu sem eru tveir af lykilþáttum menntastefnu Reykjavíkurborgar.
Framundan er spennandi tími uppfullur af ævintýrum og það væri frábært að fá þig í hópinn!
Um er að ræða 100% sem laust er nú þegar eða eftir samkomulagi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Leikskólinn vinnur samkvæmt Regnbogavottun Reykjavíkur
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt áherslum leikskólans undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og/eða önnur uppeldismenntun.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Frír hádegismatur; hægt að fá vegan og grænmetismat.
- Forgangur barna í leikskóla og afsláttur af dvalargjaldi.
- Líkamsræktarstyrkur.
- Menningarkort; frítt í öll söfn borgarinnar og bókasafnskort.
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
- Samgöngustyrkur.
- Sundkort; frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar allt árið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttafélags.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Rannveig Anna Ólafsdóttir í tölvupósti: rannveig.anna.olafsdottir@rvkskolar.is