Back to the jobs page

Deildarstjóri

Við óskum eftir kennaramenntuðum deildarstjóra í hópinn okkar. Jöklaborg er leikskóli fyrir 1-6 ára gömul börn.

Fullt starf Leikskólinn Jöklaborg 109
Apply

Við í leikskólanum Jöklaborg óskum eftir metnaðarfullum deildarstjóra í hópinn okkar! Spennandi tímar eru framundan þar sem starf í anda Reggio Emilia er byggt upp í sterkri og skemmtilegri liðsheild. Einnig erum við að vinna að því að verða réttindaskóli Unicef.

Í Jöklaborg verða 105 börn á þessu skólaári á aldrinum 1-6 ára. Leiðarljós okkar eru gleði, virðing og sköpun.

Við leggjum áherslu á að gleði sé ríkjandi í öllu starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir hverjum einstaklingi.

Við vinnum ötullega að endurskipulagningu starfsins þar sem starf í anda Reggio Emilia er í hávegum haft þar sem Aðalnámskrá leikskóla, Menntastefna Reykjavíkurborgar og lög um leikskóla verða höfð að leiðarljósi. Þá verður áhersla jafnframt á félagsfærni, læsi og að efla íslenskan orðaforða.

Við hvetjum áhugasama til að hafa samband!

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að menntun og uppeldi leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
  • Ber ábyrgð á menntunar- og uppeldisstarfi sem fram fer á deildinni.
  • Fagleg forysta og ábyrgð á stjórnun, skipulagningu og mati deildarstarfsins.
  • Ber ábyrgð á foreldrasamvinnu og samvinnu við aðra fagaðila.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara/kennara. Eða önnur sambærileg menntun.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði. B2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum
  • Reynsla af sambærilegu starfi.
  • Áhugi á þróunarstarfi í anda Reggio Emilia.
  • Færni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði, jákvæðni og metnaður í starfi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð leiðtogafærni og geta til að koma auga á styrkleika ólíkra einstaklinga.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • 100% starfshlutfall
  • Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunnar, 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
  • Sundkort, ókeypis aðgang að öllum sundlaugum Reykjavíkurborgar.
  • Menningarkort sem veitir ókeypis aðgang að söfnum borgarinnar.
  • Samgöngustyrkur.
  • Líkamsræktarstyrkur.
  • Frítt fæði sem boðið er uppá á matartímum skólans.

Starfið er nú þegar laust.

Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ/FL

Vakni einhverjar spurningar hafið endilega samband við Ástu Kristínu Svavarsdóttur, leikskólastjóra í síma 411-3251 / 696-5096, eða Þórhildi Sif Þórmundsdóttur í síma 4113250 og í tölvupósti joklaborg@reykjavik.is.

Apply