Back to the jobs page

Sérkennsla í leikskóla

Viltu koma að vinna á faglegum og skemmtilegum vinnustað?

Fullt starf Leikskólinn Hálsaskógur 109
Apply

Leikskólakennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með menntun sem nýtist í starfi óskast til starfa við sérkennslu / sértækan stuðning á deild í leikskólanum Hálsaskógi. 

Unnið er í teymi með foreldrum, sérkennslustjóra leikskólans, öðrum stuðningsaðilum, deildarstarfsmönnum og ráðgjöfum frá Suðurmiðstöð. 

Hálsaskógur er 6 deilda leikskóla sem leggur áherslu á umhverfismennt ástamt því að efla félagsfærni í gegnum útinám. Við störfum eftir hugmyndafræði John Dewey og Mihaly Csikzentmihalyi um jákvæða sálfræði og eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Við erum réttindaskóli UNICEF og leggjum áherslu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í öllu starfi emð börnum og fjölskyldum þeirra. 

Leikskólinn er í sífelldri þróun og mótun og óskum við eftir áhugasömum starfsmanni sem er tilbúinn að taka þátt í að þróa starfið með okkur og vera hluti af okkar faglega og skemmtilega hópi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að sinna sérkennslu / sértækum stuðning við barn í samvinnu við sérkennslustjóra
  • Að eiga samstarf við foreldra, deildarstarfsmenn, fagaðila og aðra ráðgjafa út frá þörfum barns. 
  • Að sinna verkefnum er varða sérkennslu og öðrum tilfallandi störfum innan leikskólans.

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta er algjört skilyrði fyrir þetta starf eða að minnsta kosti á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálakvarðanum.
  • Hreint sakavottorð. 

Laun eru samkvæmt samningi Sambandi íslenskra sveitafélaga og viðeigandi stéttarfélags. 

Fríðindi í starfi

  • Reykjavíkurkort (sund og menning)
  • Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mánuði í starfi.
  • Samgöngusamningur
  • Vinnutímasamningur út frá leiðum Betri vinnutíma og nýrrar Reykjavíkurleiðar í leikskólum. 

Frekari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Björk Eyþórsdóttir á netfanginu halsaskogur@reykjavik.is 

Apply