Ráðgjafi heim í SkaHm þekkingarmiðstöð
SkaHm er heildstæð þjónusta fyrir börn með tilfinninga- og hegðunarvanda sem og fjölskyldur þeirra.
Laus er 80% staða í Ráðgjafinn heim sem sinnir Heimastuðning og ráðgjöf.
Þjónusta SkaHm skiptist í tvö svið, Ráðgjafarsvið og Dvalarsvið.
Undir Ráðgjafasviði er Heimastuðningur og ráðgjöf ásamt Þekkingu.
Heimastuðningur og ráðgjöf – Leggur áherslu á að styðja barn í tilfinningavanda og valdefla/styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Þjónustan er bæði veitt inn á heimili og utan þess.
Þekking – Leggur áherslu á lausnarmiðaða ráðgjöf, handleiðslu og fræðslu m.t.t. faglegrar nálgunar í vinnu með börnum og fjölskyldum.
Undir Dvalarsviði er Styrkur og Dvöl.
Styrkur – Markmiðsdrifin þjónusta sem felur í sér að styðja barnið við að efla félagsfærni, sjálfstæði og virkni í daglegum athöfnum.
Dvöl – Er sólarhringsþjónusta þar sem börnum og foreldrum er veitt tímabundin hvíld með það að markmiði að draga úr streituvaldandi aðstæðum. Auk þess felst starfsemin í því að styðja barnið í athöfnum daglegs lífs.
Allt starf SkaHm byggir á teymisvinnu þar sem unnið er að farsæld barnsins.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppeldisráðgjöf og stuðningur við foreldra; unnið er með foreldrum að því að efla jákvæð tengsl, samvinnu og öryggi í uppeldishlutverkinu.
- Heimastuðningur; stuðningur veittur inn á heimili þar sem unnið er með fjölskyldunni útfrá markmiðum einstaklingsáætlunar.
- Stuðningur við barn; stuðningur beinist á barninu sjálfu með áherslu á athafnir daglegs lífs, tilfinningastjórn, félagsfærni og virkni.
- Stefnumótunarvinna með teymisstjóra og öðru starfsfólki.
- Samstarf við þjónustumiðstöðvar, málstjóra farsældar, Barnavernd Reykjavíkur og aðra þjónustuaðila sem koma að málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda.
- Framhaldsmenntun æskileg.
- Þekking og reynsla af starfi með börnum með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldum þeirra.
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þekking á lögum um Samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
- Þekking og reynsla af notkun gagnreyndra aðferða í uppeldisstarfi.
- Íslenskukunnátta B1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Birna Sigfúsdóttir teymisstjóri á Ráðgjafarsviði í netfanginu inga.birna.sigfusdottir@reykjavik.is