Deildarstjóri - Brekkuborg
Deildarstjóri óskast til starfa á eldri deild í leikskólann Brekkuborg.
Deildarstjóri á eldri deild óskast til starfa í leikskólann Brekkuborg. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa er leitað eftir einstaklingum með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfið.
Brekkuborg er fjögurra deilda leikskóli í Hlíðarhúsum 1 í Grafarvogi.
Við leggjum áherslu á lýðræði, sjálfstæði barna og umhverfismennt.
Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem sjálfstæði, sjálfræði og lýðræði er kjarninn í starfi skólans.
Unnið er að því að skapa börnum hlýlegt umhverfi þar sem þau geta verið virk, skapandi og sjálfstæð. Lögð er áhersla á gott foreldrasamstarf og góður starfsandi einkennir starf Brekkuborgar.
Brekkuborg vann hvatningarverðlaun Reykjavíkur 2024-2025
Einkunnarorð skólans eru: Vinátta - Virðing - Lýðræði.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Fríðindi í starfi
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur
Verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
- Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Leikskólakennaramenntun æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum skilyrði
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Færni í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Starfið er laust frá 5. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi
Upplýsingar um starfið veitir Kristín Auður Harðardóttir í síma 411 3980 og í tölvupósti brekkuborg@reykjavik.is