Aðstoðarmanneskja í eldhúsi
Laust er til umsóknar starf aðstöðumanneskju í eldhúsi við Háteigsskóla. Um er að ræða 50-60% starf sem laust er frá 1. september 2026.
Laust er til umsóknar starf aðstoðarmanneskju í eldhúsi við Háteigsskóla. Um er að ræða 50-60% starf sem laust er frá 1. ágúst 2026
Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni, félagsfærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.
Skólinn hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarstofnun síðastliðin þrjú ár í röð í vali á stofnun ársins. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða við matseld fyrir nemendur og starfsfólk.
- Annast frágang í eldhúsi, kaffistöfu og matsal.
Hæfniskröfur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði í starfi, reglusemi og stundvísi.
- Góð íslenskukunnátta.
- Góð samskiptahæfni.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Norberg Sigfúsdóttir í síma 411- 6870 eða í tölvupósti gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Sameykis og Reykjavíkurborgar.