Stuðningsfulltrúi
Hagaskóli leitar að stuðningsfulltrúa í 80% starf fyrir skólaárið 2026-2027.
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með tæplega 600 nemendur í 8. til 10. bekk og um 80 starfsmenn. Spennandi starf í skóla þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem kennarar hafa útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt er evrópska tungumálarammanum
- Uppeldismenntun eða menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt samningum Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Inga Tómasdóttir, deildarstjóri mannauðs og rekstrar í Hagaskóla, gudrun.inga.tomasdottir@reykjavik.is