Heimilisfræði/útikennsla
Heimilisfræðikennari óskast tímabundið við Rimaskóla til áramóta, gæti verið út skólaárið. Um er að ræða heimilsifræðikennslu hjá nemendum frá 5. - 10.bekkja.
Um er að ræða 28 tíma í töflu - þar af valgreinar á unglingastigi.
Viðkomandi kennari hefur aðgang að ágætlega útbúinni heimilisfræðistofu og einnig er útikennslustofa við skólann.
Heimilisfræðikennsla nemenda frá 5. - 10.bekk.
Kennari sér um að kenna eftir aðalnámskrá grunnskóla, sér um efniskaup og heldur utan um heimilsifræðistofu.
Um er að ræða tímabundin forföll til áramóta en gætu orðið út þetta skólaár.
Verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í innleiðingu aðalnámskrár og námsmati
- Sitja í teymi um heilsueflandi skóla
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara
- Menntun og hæfni til kennslu heimilisfræði
- Hæfni í teymiskennslu
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
- Faglegur metnaður
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastjóri í síma 411-7720 eða í netfanginu thoranna.rosa.olafsdottir@reykjavik.is.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélag og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.