Frístundaleiðbeinandi í sértækri félagsmiðstöð
Frístundamiðstöðin Brúin óskar eftir að ráða til starfa hlutastarfsfólk í sértæku félagsmiðstöðina Höllina.
Félagsmiðstöðin Höllin er staðsett í Egilshöll og stendur fyrir félagsmiðstöðvarstarfi, að skóla loknum, fyrir fötluð börn á aldrinum 10 - 16 ára. Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er milli 13:30-17:00 á virkum dögum.
Frístundamiðstöðin Brúin óskar eftir að ráða til starfa hlutastarfsfólk í sértæku félagsmiðstöðina Höllina.
Félagsmiðstöðin Höllin er staðsett í Egilshöll og stendur fyrir félagsmiðstöðvarstarfi, að skóla loknum, fyrir fötluð börn á aldrinum 10 - 16 ára. Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er milli 13:30-17:00 á virkum dögum.
Markmið starfsins er að veita fötluðum börnum, unglingum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Það felur í sér að að veita börnunum frítímaþjónustu óháð aldri þeirra, áhugasviði eða getu í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.
Höllin tilheyrir Frístundamiðstöðinni Brúnni. Brúin starfrækir níu félagsmiðstöðvar í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti og Úlfarsárdal sem heita Ársel, Holtið, Fjörgyn, Sigyn, Vígyn, Fellið, Plútó, Fókus og sértæka félagsmiðstöðin Höllin.
Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er milli 13:30-17:00 á virkum dögum.
Um er að ræða tímabundna ráðningu frá lok ágúst til byrjun júní 2027.
Umsækjendur þurfa að vera með stúdentspróf.
Helstu verkefni og ábyrgð
* Skipulagning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi fyrir fötluð börn og unglinga á aldrinum 10-16 ára.
* Leiðbeina börnum og unglingum í leik og starfi.
* Samráð og samvinna við börn, unglinga og starfsfólk.
* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
Hæfniskröfur
* Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
* Fjölbreytt færni sem nýtist í starfi með börnum og unglingum.
* Reynsla af félagsstörfum, eða frítímastarfi með börnum og unglingum.
* Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
* Frumkvæði og sjálfstæði.
* Færni í samskiptum.
Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Frekari upplýsingar um starfið
* Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags. Frístundaleiðbeinandi í sértækri félagsmiðstöð eða frístundaráðgjafi í félagsmiðstöð sé umsækjandi með háskólapróf. Sjá nánar á https://www.sameyki.is/kaup-og-kjor/kjarasamningar/reykjavikurborg/
*Vinsamlegast sendið inn starfsferilskrá með umsókn.
*Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
* Starfshlutfall 20-50%
* Tímabundin ráðning
Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Vinsamlegast sendið inn starfsferilskrá með umsókn. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísa Pálsdóttir (elisa.palsdottir@reykjavik.is eða Inga Lára Björnsdóttir, deildarstjóri unglingastarfs í Frístundamiðstöðinni Brúnni (inga.lara.bjornsdottir@reykjavik.is).