Back to the jobs page

Leikskólakennari Brekkuborg

Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Brekkuborg

Fullt starf Leikskólinn Brekkuborg 112
Apply

Leikskólakennari óskast til starfa við leikskólann Brekkuborg sem er fjögurra deilda leikskóli í Hlíðarhúsum 1 í Grafarvogi.

Í leikskólanum er lögð áhersla á lýðræði, sjálfstæði barna og umhverfismennt. Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem sjálfstæði, sjálfræði og lýðræði er kjarninn í starfinu. Unnið er að því að skapa börnum hlýlegt umhverfi þar sem þau geta verið virk, skapandi og sjálfstæð. Lögð er áhersla á gott foreldrasamstarf og góður starfsandi einkennir starf Brekkuborgar. Brekkuborg vann hvatningarverðlaun Reykjavíkur 2024-2025

Einkunnarorð skólans eru: Vinátta - Virðing - Lýðræði.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Apply