Back to the jobs page

Skólaliði óskast í Árbæjarskóla

Skólaliði óskast til starfa við Árbæjarskóla. 

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru um 700 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. 

Fullt starf Árbæjarskóli 110
Apply

Stuðningsfulltrúi óskast til starfa við Árbæjarskóla.

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru rúmlega 700 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 112 og er starfsandi mjög góður. Í skólanum er lögð áhersla á teymisvinnu kennara, starfsþróun og fjölbreytta kennsluhætti. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott. 

 

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.

Verkefni og ábyrgð

Móttaka nemenda og eftirfylgni með þeim á skólatíma. 

Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.

Frímínútnagæsla eftir þörfum. 

Afgreiðsla, umsjón og gæsla í matar og kaffitímum. 

Ræsting skv. skipulagi.

Önnur tilfallandi störf. 

Hæfniskröfur

Reynsla og áhugi á að vinna með börnum. 

Reynsla af þrifum. 

Hæfni í samskiptum ásamt frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Jákvæðni, stundvísi og sveigjanleiki.  

Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi.  

Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.  

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Erna Þórhallsdóttir aðstoðarskólastjóri Gudrun.Erna.Thorhallsdottir@reykjavik.is eða Guðlaug Sturlaugsdóttir skólastjóri Gudlaug.Sturlaugsdottir@reykjavik.is

Apply