Leikur og málörvun
Frábæran, jákvæðan og lausnarmiðaðan starfsmann vantar í framtíðar starf í Holti. Aðstoða börn á öllum aldri við allar daglegar athafnir leikskólalífsins. Mikil áhersla er á málörvun og að efla íslenska tungumálið hjá börnunum. Fullt starf er í boði, en tímavinna með skóla kemur einnig til greina.
Leikskólinn Holt auglýsir eftir leikskólakennara, leiðbeinanda eða starfsmanni með sambærilega menntun til starfa.
Holt er fimm deilda leikskóli, staðsettur í tveimur húsum (Stóra-Holt og Litla-Holt) í Völvufelli 7-9 í Breiðholti. Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu. Við erum samstarfsaðilar í þróunarverkefninu „Markviss málörvun í Fellahverfi". Við erum í miklu samstarfi í hverfinu um menningu, mál og læsi í Fellahverfi. Í tengslum við bæði þessi verkefni erum í samvinnu með talmeinafræðingum um málörvun barna og fræðslu fyrir starfsfólk og foreldra. Einnig erum við að vinna með tannvernd, að efla félagsfærni barna og Vináttuverkefnið um Blæ bangsa.
Starfið er laust. Um tímabundna stöðu er að ræða, fullt starf eða tímavinna með skóla í boði.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinanda, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta er skilyrði B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
Menningar- og sundkort
Samgöngustyrkur
36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Heilsuræktarstyrkur