Stuðningsfulltrúi á nýtt heimili fyrir ungmenni með fjölþættan vanda
Stuðningsfulltrúi óskast til starfa á nýtt heimili fyrir ungmenni með fjölþættan vanda.
Markmið starfseminnar er að veita ungmennum með fjölþættan vanda stuðning við undirbúning sjálfstæðrar búsetu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu, jákvæða vinnustaðamenningu og uppbyggileg samskipti. Unnið er eftir áfallamiðaðri nálgun, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, skaðaminnkun, aðferðum þjónandi leiðsagnar og valdeflingu. Þjónustan miðast við að auka sjálfstæði, efla færni og lífsgæði íbúa. Um sólarhringsþjónustu er að ræða og unnið á vöktum.
Starfshlutfall 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að hvetja og styðja íbúa til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi.
- Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
- Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá eftir þörfum hverju sinni.
- Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með fjölþættar stuðningsþarfir æskileg.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Framúrskarandi hæfni, þolinmæði og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Bílpróf er kostur
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalbjörg Traustadóttir í s. 6647760 eða í tölvupósti adalbjorg.traustadottir@reykjavik.is