Back to the jobs page

Umsjón og þróun listasmiðju fyrir fatlað fólk

Vilt þú taka þátt í að skapa umhverfi þar sem listsköpun, þátttaka og mannleg tengsl fá að blómstra?

Við leitum að einstaklingi með áhuga á listsköpun, mannrækt og valdeflandi starfi með fólki. Einstakt tækifæri til að móta framtíð listasmiðju fyrir fatlað fólk og þróa skapandi starfsemi í samstarfi við þátttakendur og samstarfsfólk. 

Fullt starf Virknimiðuð stoðþjónusta
Apply

Vilt þú taka þátt í að skapa umhverfi þar sem listsköpun, þátttaka og mannleg tengsl fá að blómstra?

Við leitum að einstaklingi með áhuga á listsköpun, mannrækt og valdeflandi starfi með fólki. Einstakt tækifæri til að móta framtíð listasmiðju fyrir fatlað fólk og þróa skapandi starfsemi í samstarfi við þátttakendur og samstarfsfólk.

Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi, ásamt smíðastofunni SmíRey, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar, með áherslu á skapandi, valdeflandi og styðjandi umhverfi.

Í listasmiðjunni fá fatlaðir einstaklingar tækifæri til að tjá sig, skapa og þróa færni sína í gegnum leir, textíl og myndlist. Þar eru einnig framleiddar fjölbreyttar handverksvörur til sölu. Við leggjum áherslu á virðingu, þátttöku, sköpunargleði og einstaklingsmiðaðan stuðning.

Helstu verkefni

  • Leiða leirsmiðjuna og uppbyggingu listasmiðjunnar.
  • Umsjón með daglegri starfsemi, skipulagi og innkaupum.
  • Leiðbeina og styðja þátttakendur í skapandi starfi með áherslu á leir, myndlist og textíl.
  • Þróa skapandi verkefni sem efla þátttöku, sjálfstæði og færni.
  • Náið samstarf við þátttakendur, deildarstjóra og annað starfsfólk.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði leirlistar, listkennslu, þroskaþjálfunar eða sambærilegra greina.
  • Sérþekking og reynsla af leirvinnu er skilyrði.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg.
  • Reynsla af textíl, myndlist eða öðrum listgreinum er æskileg.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Hreint sakavottorð.

Við bjóðum

  • Tækifæri til að móta og þróa listasmiðju sem byggir á sköpun, þátttöku og valdeflingu.
  • Gefandi og fjölbreytt starf þar sem listir og mannleg tengsl fara hönd í hönd.
  • Samstarf við öflugt og metnaðarfullt starfsfólk í þverfaglegu umhverfi.
  • Svigrúm til að hrinda hugmyndum í framkvæmd og hafa raunveruleg áhrif á starfsemina.

Starfið er staðsett að Skeifunni 8, á annarri hæð.

Opnunartími: kl. 8:30–16:00. Vinnuvikan er 36 stundir.

Nánari upplýsingar veitir Hanna Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður, (hanna.kristin.sigurdardottir@reykjavik.is) eða Skúlína Vigdísardóttir, deildarstjóri, (skulina.vigdisardottir@reykjavik.is). 

Apply