Deildarstjóri
Leikskólinn Blásalir leitar eftir áhugasömum deildarstjóra
Deildarstjóri óskast til starfa við leikskólann Blásali
Blásalir er fjögurra deilda leikskóli við Brekknaás í Árbæ. Áhersla er lögð á útiveru, skapandi starf og gleði. Leikskólinn er með Grænfánann og eru græn gildi og útikennsla einkennandi fyrir starfið. Uppeldisstefna skólans er að miklu leiti byggð á kenningu John Dewey um nám barna. Lögð er áhersla á að efla virðingu fyrir einstaklingnum, sjálfshjálp, félagsfærni og snemmtæka íhlutun. Leiðarljós leikskólans er ,,heilbrigð sál í hraustum líkama” sem vísar til þess að börnin þurfa að borða hollan mat, fá góða hreyfingu og reglulegan svefn til að geta notið þess að vera úti í náttúrunni í hvaða veðri sem er.
Einkunnarorð leikskólans eru: Virðing - Gleði - Hreysti - Sköpun
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni.
- Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar.
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborg
- Góð íslenskukunnátta skilyrði B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Íþróttastyrkur
- Sundkort
- Samgöngustyrkur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Um 100% starf að ræða.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmfríður Hannesdóttir leikskólastjóri í tölvupósti holmfridur.bjargey.hannesdottir@reykjavik.is eða í síma 4116820