Back to the jobs page

Leikskólasérkennari / Þroskaþjálfi

Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa við sérkennslu í leikskólanum Brekkuborg. 

Fullt starf Leikskólinn Brekkuborg 112
Apply

Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með sambærilega menntun óskast til starfa við sérkennslu við leikskólann Brekkuborg sem er fjögurra deilda leikskóli í Hlíðarhúsum 1 í Grafarvogi. Í skólanum er lögð áhersla á lýðræði, sjálfstæði barna og umhverfismennt. Skólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem sjálfstæði, sjálfræði og lýðræði er kjarninn í starfinu. Unnið er að því að skapa börnum hlýlegt umhverfi þar sem þau geta verið virk, skapandi og sjálfstæð. Lögð er áhersla á gott foreldrasamstarf og góður starfsandi einkennir starf Brekkuborgar. 

Einkunnarorð skólans eru: Vinátta - Virðing - Lýðræði.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
  • Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Að vinna að gerð einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
  • Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.

Hæfniskröfur

  • Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sérkennslu æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi

  • Menningarkort 
  • bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Heilsuræktarstyrkur

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Starfið er laust nú þegar. 

Upplýsingar um starfið veitir Kristín Auður Harðardóttir í síma 411 3980/6927711 og í tölvupósti brekkuborg@reykjavik.is

Apply