Back to the jobs page

Aðstoðaleikskólastjóri í Leikskólanum Sólborg

Leikskólinn Sólborg leitar að framsýnum aðstoðarleikskólastjóra til að leiða og efla faglegt starf í öflugu stjórnendateymi. Sólborg er sérhæfður í menntun heyrnarlausra og heyrnarskertra barna og barna sem hafa farið í kuðungsígræðslu. Leikskólinn starfar með tvítyngi þar sem íslenska og íslenskt táknmál eru jafngild. 

Fullt starf Leikskólinn Sólborg 105
Apply

Leikskólinn Sólborg leitar að öflugum og framsýnum aðstoðarleikskólastjóra sem vill taka þátt í að leiða metnaðarfullt leikskólastarf í nánu samstarfi við leikskólastjóra og starfsfólk. Aðstoðarleikskólastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegri stjórnun leikskólans og ber, í samstarfi við leikskólastjóra, ábyrgð á faglegri þróun, skipulagi og rekstri. Starfið felur meðal annars í sér leiðsögn og stuðning við starfsfólk, þátttöku í stefnumótun og þróunarverkefnum, skipulagningu daglegs starfs, samstarf við foreldra og aðra fagaðila og eftirfylgni með því að starf leikskólans sé í samræmi við lög, aðalnámskrá leikskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.

Leikskólinn Sólborg hefur einstaka sérstöðu þar sem hann er sérhæfður í menntun heyrnarlausra og heyrnarskertra barna og barna sem hafa farið í kuðungsígræðslu. Starfið byggir á tvítyngi þar sem íslenska og íslenskt táknmál eru jafngild mál og grunnur að námi, leik og samskiptum. Lögð er rík áhersla á inngildingu, fjölbreytileika, virðingu og að hvert barn fái notið styrkleika sinna í öruggu og hvetjandi námsumhverfi. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir sterkri leiðtogafærni, góðri samskiptahæfni og metnaði fyrir faglegu leikskólastarfi. Viðkomanda sem hefur áhuga á að styðja við starfsfólk, efla samstarf og leiða þróun í jákvæðu og traustu starfsumhverfi. Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar í starfinu. Hjá Sólborg gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í öflugu lærdómssamfélagi þar sem samvinna og fagleg þróun eru höfð að leiðarljósi og þar sem unnið er að því að skapa öllum börnum bestu mögulegu skilyrði til náms, þroska og þátttöku.

Menntunar - og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Skipulags- og stjórnunarhæfileikar
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Þekking á íslensku táknmáli og döff samfélaginu og/eða vilji til að sækja sér þá þekkingu.
  • Góð íslenskukunnátta á stigi B2 nauðsynleg.

Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar. Launakjör: Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands.

Apply