Back to the jobs page

Verkefnastjóri á fagskrifstofu leikskóla á skóla- og frístundasviði

Fagskrifstofa leikskóla SFS leitar að öflugum, sjálfstæðum og metnaðarfullum verkefnastjóra til starfa.

Fullt starf Skrifstofa skóla- og frístundasviðs
Apply

Undir skóla- og frístundasvið heyra grunnskólar, leikskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og skólahljómsveitir alls um 170 starfsstaðir og þar starfa um 6000 manns. Skóla- og frístundasvið þjónustar yfir 20 þúsund börn og fjölskyldur þeirra.

Fagskrifstofa leikskóla SFS annast undirbúning og eftirfylgni stefnumörkunar skóla- og frístundaráðs á grundvelli laga og reglugerðar um leikskóla og aðalnámskrár leikskóla.. Skrifstofan annast úthlutun fjármagns til sérkennslu og náms bara með annað móðurmál en íslensku.

Skrifstofan aflar faglegra upplýsinga fyrir skóla- og frístundaráð ásamt því að stýra og taka þátt í starfs- og stýrihópum jafnt innan sviðs sem utan. Fagskrifstofan hefur yfirumsjón með leyfisveitingum og eftirfylgni með eftirliti með daggæslu barna í heimahúsum auk þess sem skrifstofan hefur umsjón með rekstrarleyfum sjálfstætt starfandi leikskóla í borginni.

Starfsmenn skrifstofunnar veita stjórnendum og starfsfólki leikskóla stuðning og ráðgjöf og taka þátt í þróun faglegra starfshátta og símenntunar starfsfólks í leikskólum. Annast ytra mati á leikskólastarfi og fylgja eftir umbótum í kjölfar þess.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinna að faglegri stefnumótun Reykjavíkurborgar í leikskólamálum í samvinnu við fulltrúa skóla- og frístundaráðs og taka þátt í gerð starfsáætlunar skóla- og frístundasviðs.
  • Taka þátt í stefnumótun og verkefnum sem snúa að leikskólamálum á vegum annarra sviða borgarinnar, s.s. vegna þjónustustefnu og uppbyggingar og skipulags borgarhverfa.
  • Leiða og taka þátt í starfshópum skóla- og frístundaráðs, starfshópum sviðsins og faglegum teymum á vegum skrifstofu SFS.
  • Taka þátt í stefnumótun, nýsköpun og þróun, t.d. um læsi, skapandi starf, fjölmenningu, mat á gæðum skólastarfs, menntun fyrir alla, samstarf leikskóla og fjölskyldna, nýtingu upplýsingatækni í leikskólum, þjónustu dagforeldra og innleiðingu menntastefnu borgarinnar.
  • Veita leikskólastjórum og starfsmönnum leikskóla ráðgjöf um fagleg málefni, skipulag leikskóla og uppeldis- og menntastarf í leikskólum.
  • Veita ráðgjöf í sérverkefnum, þróunarverkefnum og nýbreytni í starfi og miðla þekkingu og nýjungum á sviði leikskólafræða til stjórnenda og starfsfólks leikskóla.
  • · Sinna ráðgjöf til foreldra og leikskóla um samstarf heimila og leikskóla og aðstoða vegna samskiptamála sem upp kunna að koma.
  • Sinna ráðgjöf, fræðslu og eftirliti með innra og ytra mati í leikskólum.
  • Tekur þátt í stefnumótun varðandi starfsáætlanir og skólanámsskrá í samráði við fagstjóra. Veitir ráðgjöf varðandi skólanámsskrá og vinnur við hana og styður einnig við þróun þegar kemur að umbótum í leikskólastarfi.
  • Vinna í þverfaglegu samstarfi innan og utan skóla- og frístundasviðs, s.s. vegna innritunar barna í leikskóla, mats á leikskólastarfi, tölvu- og upplýsingamála, þjónustustefnu borgarinnar og viðhalds, hönnunar og nýbygginga leikskóladeilda.
  • Veita kjörnum fulltrúum upplýsingar og ráðgjöf sem eftir er kallað og þörf er á.
  • · Hafa umsjón með fundum stjórnenda leikskóla og árlegum námskeiðsdögum leikskólastjóra.
  • · Vinna með mannauðsþjónustu SFS að skipulagningu símenntunar leikskólastjórnenda og starfsfólks leikskóla, áætlana um að fjölga leikskólakennurum og bæta starfsumhverfi starfsfólks leikskóla.

Menntun og reynsla:

  •  Háskólapróf í leikskólakennarafræðum eða á sviði kennslu- eða uppeldisfræða.
  •  Leyfisbréf kennara.
  •  Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði
  •  Víðtæk reynsla og þekking á starfsemi leikskóla.
  •  Reynsla af þátttöku í þróun skólastarfs og innleiðingu verkefna.
  •  Reynsla og/eða þekking á opinberri stjórnsýslu.
  •  Reynsla og/eða þekking á mati í skólastarfi.
  •  Reynsla af stjórnun leikskóla æskileg.
  •  Skipulagshæfni, frumkvæði og færni til að starfa sjálfstætt
  •  Færni í tölvum og þekking á helstu tölvuforritum er æskileg, s.s. word og excel
  •  Færni í áætlanagerð og innleiðingu verkefna
  •  Góð hæfni í samskiptum
  •  Íslenskukunátta C1 og enskukunátta B2 í samræmi við samevrópskan tunugmálaramma.

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika
  • Frítt í sundalaugar Reykjavíkur
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngusamningur
  • Aðgangur að mötuneyti

Leitað er að hugmyndaríkjum einstaklingi sem hefur víðtæka þekkingu á leikskólastarfi og áhuga á þróun og nýsköpun á þeim vettvangi.

Umsókn fylgi yfirliti yfir nám og fyrri störf ásamt afrits af prófskírteinum frá háskóla. Umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og skýra grein fyrir hæfni viðkomandi í starfið í samræmi við þær menntunar- og hæfniskröfur sem tilgreindar eru í auglýsingu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf síðasta 1.október 2026 eða eftir samkomulagi.

Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Brynjar Bjarkason, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu SFS í síma 411-1111 eða netfangi: olafur.brynjar.bjarkason@reykjavik.is

Apply