Stuðningur í Klömbrum
Leikskólinn Klambrar auglýsir eftir starfsmanni í stuðningsteymi leikskólans.
Leikskólasérkennari eða þroskaþjálfari óskast til starfa í leikskólann Klambra.
Klambrar er sex deilda leikskóli til húsa á jarðhæð stúdentagarða Bandalags námsmanna við Háteigsveg.
Allt starf á Klömbrum á að leiða til þess að börnin finni hamingju í verki, efli færni sína við að taka ákvarðanir og byggi á sínum eigin styrkleikum.
Við vitum að við lærum best með því að hlusta hvert á annað og taka vel í hugmyndir samstarfsmanna, kynnast samfélaginu sem við búum í og læra um það gamla til að öðlast skilning á því nýja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að stuðla að vellíðan barna.
- Að aðstoða börn við daglegar athafnir og þátttöku í leikskólastarfinu.
- Að styðja börn í félagslegum aðstæðum.
- Að vinna eftir einstaklingsnámskrám barna.
- Að sinna málrækt og efla íslenskukunnáttu barna.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum.
- Lipurð í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Stundvísi.
- Góð íslenskukunnátta - íslenska B2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Hádegismatur
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall: 100%
Umsóknarfrestur: 9. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Ómarsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti kristin.omarsdottir@reykjavik.is eða í síma 511-1125.